bbb

Sunday, January 21, 2007

Bláfjöll og beinbrot

Fyrsti skíðadagur ársins að baki. Þið heyrðuð rétt, ég fór á skíði í gær! ýkt gaman, æðislegt, gjeggjað og allur pakkinn! Það var frábært veður 5 gráðu frost, bjart, smá gola og gjeggjað færi- gerist varla betra! Ég, Sigga systir og Diljá vorum mættar snemma a undan traffík og gátum því farið nokkrar ferðir í stólalyftuna á vandræða. Sú stutta kom NB með okkur í stólalyftuna aðeins fimm ára! Frumraun hennar og hún stóð sig alveg þokkalega. Hún er alger hetja, vældi meira og minna í brekkunum í fyrravetur en núna er aðal-stemmningin að fara á undan mömmu sinni í lyftuna og renna sér niður á undan henni þ.e í barnalyftunni. Ég fór nú ekki nema 4 ferðir í stólalyftuna en þá sögðu fætur mínir stopp!! Greinilega ekki í alveg eins góðu formi og fyrir 10 árum þegar maður stundaði þetta sport villt og galið. Ætlaði aftur í morgun en gat rétt naumlega komist frammúr rúminu vegna harðsperra og svo er e-r andskoti kominn í hálsinn minn!! En á morgun skal það vera, tilraun tvö. Þetta er aðeins upphitun fyrir Akureyraferðina miklu sem verður með skólanum í byrjun febrúar.

Fór í "vísindaferð" á sjúkrahúsið á Selfossi í gær, vorum í Þorrablóti hjá hele familien og Ármann litli fændi datt úti þegar hann var að leika sér og meiddi sig alveg rosa mikið, grét heillengi sem er ekki honum líkt! Farið með þann stutta á sjúkrahús Selfoss og þar kom í ljós að hann hefði sprungið bein í olnboganum og nú er hann gifsaður 3ja ára drengurinn.

1 Comments:

At 11:19 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Sweety....
Vá hvað mig langaði með þér á skíði, var ekki smá svekt yfir því að vera að kenna frá kl. 10.00-14.00. Svo að passa fyrir Hildi kl 16.00 og þetta besta veður úti. En það rædist líklega úr því fyrstu helgina í feb. Inga vinkona sem er með mér hér á Laugarvatni er að reyna að draga mig Norður á Akureyri. Þannig að vonandi sjáumst við þar. Miss u og kossar og knús :-)

 

Post a Comment

<< Home