Verknam og verkefni
How fun is that?
Verknámið er svosum ágætt en gommur af verkenfum er eitthvað sem mætti alveg minnka. En ég þykist ætla að vera mega dugleg og rumpa af öllum verkefnum áður en þetta verknám er búið, það er svo annað mál hvort ég standist það, kemur í ljós í næsta kafla??
Er í þessum töluðu orðum að passa litla frænda og frænku sem voru að sofna- að ég held?? uss!! Vá, þau eru þriggja ára og eins árs og að svæfa þau saman í sama herbergi er meira en að segja það! þegar hún var lögst niður þá byrjaði hann að leika sér, og þegar ég fór að skamma hann þá fór hún að háskæla og til að gera langa sögu stutta þá endaði þetta þannig að ég HENTI honum inn í hjónaherbergið og skipaði honum að sofa og sat svo yfir henni þangað til ekkarnir hættu að heyrast. úff!
Annars allt í sómanum á mínum bæ, Steini farinn til Saudi arabíu og ég ein eftir í stóru útsýnisíbúðinni.
Hó, hó!


2 Comments:
sem þýðir bara eitt: party alla daga! he he - segi svona.
Já úff - kannast við þennan svæfingapakka - gekk í gegnum hann á spáni, sami aldur! spurning um að vera ekkert að eignast börn ha ha!
btw - sjáumst í vísó... skál!
Hæ Dúllan mín. Börn já... æi veit ekki þau eru voða fín og góð og yndisleg. Maður knúsar þau út í eitt. svo er ágætt að geta skilað þeim, þegar maður fær nó :-)
Vá hvað ég sakna þín annars. Það er allt kreisí í skólanum núna. en ég er búin 11 í prófum :-) er samt að vona að ég fá vinnu í Líf og List í Smáralind yfir jólin. Hringi í þig fljótlega sæta mín. Þykir vænt um þig
Kv. Arna
Post a Comment
<< Home