bbb

Sunday, October 16, 2005

Blóm og hasar!

Nú skal segja..
Planið hjá mér í gær var að vera heima og læra og taka því rólega og vera skynsöm þar sem ég hef verið með hálsbólgu alla vikuna. Sóley hringir í mig kl 17, vill fá mig með sér í bíó og kaffihús.. jújú það er nú í lagi hugsa ég með mér. 5 min síðar hringir Arna og tilkynnir partý hjá sér. Ég ætlaði nú ekki að fara þangað því þetta á að vera edrú helgi hjá mér!!
Jæja líður og bíður Steindór minn hringir og tilkynnir mér að ég þurfi helst að vera heima um kvöldið því vinur hans sé á leiðinni með tölvudiska til að skila sér. Mín ekki sátt að þurfa að bíða eftir þessari sendingu. Síðan gefst ég upp og fer út með Sóleyju en hringir ekki síminn rétt áður en ég fer út “..Við erum að koma með blómasendingu til þín! HAA!!!! Vinur Steindórs var þá loksins kominn eða EKKI- Blómasending! Oh.. svo sætt af honum!

En kvöldið varð þá svona:
21:15-22:04 Kaffihús með Sóleyju
22:22-00:31 Bíó á myndina Flight Plan
00:43 Ragga hjúkka pickuð upp sem leynigestur í partý til Örnu vinkonu.
01:01 Komnar í Álfatúnið og partyið búið og sumir fyrir utan að rífa kjaft við lögguna??
01:29- 03:01 Hressó þar sem tekin voru nokkur góð spor og svitnað smá í loftleysi!
03:02-03:24 Ráf um miðbæinn í leit af spennu! Fylgjumst með störfum sjúkraflutningamanna á laugardagskvöldi fyrir utan skemmtistaðinn Oliver!
03:36:-03:47 Heimkoma með hjálp Peguot 207.

Sunday, October 09, 2005

Emill strákskratti!

Mikið er nú gaman að vera til, sérstaklega þegar maður er svona ungur og frjáls og getur gert nákvæmlega það sem mann langar til að gera!! Ég vona að ég hljóði ekki of væmin en þetta er satt. Maður á sko að njóta þess (meðan maður getur)!
Ég var að enda við að taka til í íbúðinni okkar Steina sem var gersamlega búið að tæta í smásameindir!! Það var smá matarboð hér í kvöld handa mömmu, systur minni, mági og tveimur litlum gríslingum 2ja og 3ja og sá tveggja ára er á þessum aldri sem þarf að skoða allt þegar hann kemur í nýtt hús og ekki bara skoða heldur eyðileggja líka, sjá hvernig hlutirnir eru settir saman!!! Sem er ekki sniðugt!!! Síðan var líka mjög erfitt fyrir hann að sitja kyrr svo að hér eru slettur upp um alla veggi af súkkulaðiís. Það er semsagt núna búið að tæma úr mér alla orku svo ég get bara farið að sofa. Vá hvað ég á örugglega aldrei eftir að eignast svona krakka, þar sem að þolinmæðin mín var mjög fljótt búin og ég farin að öskra á þau! En þau eru nú samt voða sæt þegar þau eru þæg.
Helgin er búin að vera mjög skemmtileg. Októberfest á föstudagskvöldið = fullt af bjór!! og í gær var ég með heimboð fyrir vinina ( fyrir þunna og ekki þunna)!
Að lokum ætla ég að leyfa mér að skammast aðeins hérna á þessu bloggi því ég heyri héðan og þaðan að fólk sé að lesa síðuna mína en samt eru commentunum alltaf að fækka!?
Comment takk!!

Monday, October 03, 2005

Vestmannaeyjaferð


Arni Johnsen og gellurnar! Posted by Picasa

Helgin að baki búin að vera frekar skrautleg svo ég lýsi því nánar þá var stefnan tekin á Vestmannaeyjar með hjúkkum um helgina.
Laugardagur:
Lögðum af stað úr bænum kl 10:15 og svo með Rútu í Þorlákshöfn og svo í Herjólf (dallinn). Snilldar ferð í Herjólfi og það mín fyrsta. Dagskráin hjá okkur byrjaði með rútuferð um Heimaey. Þar vorum við frædd um ýmsar staðreyndir Vestmannaeyja. Síðan var vísindaferð í Sjúkrahús Vestmannaeyja. Mjög gaman að koma þangað- ólíkt því sem er á LSH þar sem að þetta er ekki deildarskipt sjúkrahús heldur er þetta allt í einum hrærigraut. Fengum þarna líka góðar veitingar rjómalagaða sherry sveppasúpu og nóg af drykkjarföngum! Síðan var farið í skátaheimilið og gert sig sæta fyrir hið fræga Lundaball eyjamanna. (uppskeruhátíð lundaveiðimanna). Byrjuðum að fara á skemmtistað eyjamanna Lundann og dilla okkur. Fórum síðan á ballið. Svaka stemning! Dans á rósum var hljómsveitin sem spilaði fyrir dansi og var hún bara alveg ágæt. Þetta var nú svoldið öðruvísi fílingur en í bænum þar sem maður þekkir alltaf einhverja á böllunum en þarna þekkti maður engann!! Eða jú fannst ég þekkja þarna einn heimamann “Já hann er alveg ofboðlsega frægur- hann tók í höndina á mér heilsaði mér”.....! Hver annar en Árni Johnsen! Ég og Ásta Lovísa gátum bara ekki setið á okkur og heisluðum kallinum og fengum mynd af okkur með honum en ég gerðist nú ekki svo fræg að dansa við hann... en það gerði ein eftir miklar vangaveltur hvor okkar væri djarfari til að bjóða manninum í dans og hver önnur en þokkadísin Ásta Lovísa bauð fræga manninum upp í dans!!
Eg fór heim af ballinu “eh.. veit ekki hvenær..”
Sunnudagur - Heimferðardagur
Byrjað að fara í Tvistinn og fá sér einn sveittan hamborgar með frösnkum- já og sá var sveittur og næstum ósteiktur!
Herjólfur kl 16 í góðu veðri en brjáluðum öldugangi svo brimið sást í sjónum. Úfff!!!!!!
Settist ásamt öllum hjúkkunum inn í sjónvarpssal og kom mér fyrir og starfsfólkið byrjaði á að bjóða öllum æludalla- sem var mjög fyndið á því mómenti. Síðan var farið frá landi og þá fékk ég hláturskast dauðans! því þetta var eins og rússíbani. Svo leið á ferðina og Sóley var fain að æla og Ólöf hjúkka að bera æludallana hennar í ruslið. Svo einn farþegi af öðrum fainn að kasta upp ojjj. Ég gat ekki haldið í mér lengur og fór fram að kasta upp og þar var ekki fögur sjón allir dauðir á gólfunum með æludalla sér við hlið. Síðan var kallað eftir hjúkrunarfræðinigi eða lækni því ein ung stelpa var farin að fá flogaköst mjög ört og enginn vissi nákvæmlega hvað væri best að gera fyrir stelpuna. Hún lá þarna í 1 klst með flog á svona 5 min millibili og var orðin alveg örmagna og meðvitundarlaus. Svo þetta leit nú ekki vel út.
Við vorum komin úr þessum ógeðslega Herjólfs dalli kl 19 öll græn í framan. Ég vona að ég eigi aldrei eftir að fara í þennan ógeðslega dall aftur!!
Ojbaraasta!